Hráefni:

500-600 gr af laxi (eða eftir fjölda)

Teriyaki sósa

Sesamfræ

Grískt jógúrt/sýrður rjómi

Hálf – heil agúrka eftir smekk

Safi úr hálfri sítrónu

1 hvítlauksrif

Sítróna

Bygg

Salt og pipar

Eldunaraðferð:

Byrjið á því að elda byggi eftir leiðbeiningum og meðan að það er að elda undirbúum við restina af matnum.

Kveikja á ofninum í 200 gráður á blástri.

Næst gerum við laxinn tilbúinn. Hann er settur í fat, Teriyaki sósunni hellt yfir hana, matsatriði hvað þið viljið setja mikið, venjulega er ég að nota sirka 3/4 af flöskunni. Sósunni er smurt yfir laxinn. Eftir það er ágætum skammti af sesamfræum stráð yfir.

Laxinn er settur inn í ofn í 15-20 mínótur eftir þykkt bita.

Á meðan laxinn er í ofninum er sósan undirbúin. Ég hef notað bæði sýrðan rjóma og grískt jógúrt og finnst það koma jafn vel út. Nota sirka hálfa stóra dollu af grískri jógúrt, eða 2 dósir af sýrðum rjóma. Fyrsta skrefið er að rífa niður agúrkuna með rifjárni, setja inn í viskastykki og vinda yfir vaskinum, við viljum náð sem mestum vökva úr. Gúrkunni er svo blandað saman við jógúrtið. Því næst er eitt rif af hvítlauk kreist í jógúrtið og síðan safa úr hálfri sítrónu. Að lokum er sósan smökkuð til með salti og pipar.

Eftir að þetta hefur klárast ætti laxinn að fara að verða tilbúinn. Byggið ætti að fara að verða tilbúið og því ekkert eftir nema að leggja á borð og njóta.