Nautagúllas pottréttur

Skammtar: 3 fullorðnir · Undirbúningur: 15 mín. · Eldun: 30 mín.

Hráefni:

500 gr nautagúllas/lambagúllas

1 laukur

1 rautt chilli

1 askja sveppir

6 litlar gulrætur, eða 2 stórar

1 peli matreiðslusrjómi

2 hvítlauksrif

1 teskeið sojasósa

1 teningur sveppakraftur

salt og pipar eftir smekk

Valkvætt: fersk steinselja

Eldunaraðgerð:

Byrjað er á því að hita pönnuna á meðal hita, þegar hún er orðin heit má bæta olíu á pönnuna.

Því næst er gúllasi bætt á pönnuna og steikt í um 5 mínútur eða þanga til að ekki sést í rautt lengur.

Meðan kjötið er að steikjast er grænmeti skorið niður. Laukurinn saxaður, gulrætur skornar í bita líkt og sést á mynd, hvítlauksrif söxuð, sveppir skornir í sneiðar og chilli skorið í bita. Grænmetinu er síðan bætt við jafnóðum meðan er verið að steikja.

Salti, pipar og sojasósu er bætt við og steikt í um 10 mínútur eða þanga til kjötið fer að líta út fyrir að vera að mestu steikt í gegn.

Því næst er rjóma og sveppakrafti bætt við. Hiti er lækkaður í lágmarks hita og látið malla meðan meðlæti er búið til með matnum.

Að lokum er smakkað til með pipar og salti. Ef til er fersk steinselja, mæli ég með að bæta henni við í endann.

Rétturinn var borinn fram með hrísgrjónum og steiktu spínati með smjöri, hvítlauk og chilli. Sjá má uppskrift hér.

Leave a Reply